- 29.09.2011 Check out our Blog and Facebook page
- 29.09.2011 Check out our Blog and Facebook page
- 29.09.2011 Check out our Blog and Facebook page
- 07.06.2011 Hotel Highland and Fossbúð
- 31.08.2010 Aurora Forecast Sept - Oct 2010
- Meira..
Áhugaverðir staðir : Eyjafjallajökull
Eyjafjallajökull er 1666 m há jökulbunga, undir honum er eldstöð. Hann er einn af smærri jöklum landsins. Hann trónir á fjallgarðinum norður af Skógum syðst á Suðurlandi, gengur vestur úr Mýrdalsjökli, sem er til muna stærri.
Jökullinn hylur eldstöðina, en þarna hefur gosið nokkrum sinnum síðan á ísöld. Gígurinn er talinn vera 3-4 km í þvermál, en jökullinn allur er um 100 km². Í júní 1994 gekk yfir jarðskjálftahrina undir Eyjafjöllum, sem stóð í um mánaðartíma, upptökin voru í og umhverfis eldstöðina í Eyjafjallajökli. Að öllu jöfnu er þarna allt í rólegheitum og engin ástæða til að bera ugg fyrir brjósti. - Eyjafjallajökull gaus síðast á árunum 1821-1823.
Fjallgarður Eyjafjalla var eitt sinn strönd Atlandshafsins, en land hefur lyfst þarna úr sæ og búsældarlegt undirlendi myndast meðfram fjöllunum. Fagrir fossar falla fram af brúnum Eyjafjalla, þekktastir eru Skógafoss og Seljalandsfoss. Í hvassviðri kemur fyrir að vindurinn feykir vatninu til hliðar eða hreinlega að fossarnir hverfi upp í himininn.
Þegar vel viðrar sést Eyjafjallajökull vel frá Hótel Skógum og upp frá Skógafossi liggur hin þekkta gönguleið um Fimmvörðuháls upp á jökul og yfir í Þórsmörk. Eyjafjallajökull er einn þeirra þriggja jökla sem umlykja Þórsmörk, hinir eru Mýrdalsjökull og Tindfjallajökull. Í boði eru ferðir upp á jökulinn, bæði á skíðum, vélsleðum, jeppum eða gangandi. Það fylgir því alltaf viss hætta að ferðast á jökli, þess vegna skyldi enginn ókunnugur fara á jökul án þess að kynna sér aðstæður mjög vel, tryggast er að vera í fylgd leiðsögumanns.



