• English
  • Íslenska
  • Hrauneyjar
  • Hotel Highland
  • Hotel Skogar
  • Hotel Ranga
  • All Season Hotels
  • Heim
  • Hótel upplýsingar
  • Gisting
  • Veitingar
  • Fundir og Ráðstefnur
  • Afþreying
  • Áhugaverðir staðir
  • Landakort
  • Myndir og 360
  • Hafa samband
  • To pass validation of validator.w3.org..in case ther's no sub navigation
Hotel Skógar
  • Velkomin til okkar
  • Sértilboð
  • Fréttir
  • Atburðir
  • 29.09.2011 Check out our Blog and Facebook page
  • 29.09.2011 Check out our Blog and Facebook page
  • 29.09.2011 Check out our Blog and Facebook page
  • 07.06.2011 Hotel Highland and Fossbúð
  • 31.08.2010 Aurora Forecast Sept - Oct 2010
  • Meira..

    Mailinglist

    Join our mailing list and recieve great offers Sign up
    • You are here:
    • hotelskogar.is
    • IS
    • Áhugaverðir staðir

    Áhugaverðir staðir : Vatnajökull - þjóðgarður

    Í Hálendismiðstöðinni á Hrauenyjum er á sumrin landvörður, sem veitir upplýsingar um vestursvæði þjóðgarðsins. Aðgengi að vesturhlíðum jökulsins um Jökulheima, svo og norður í land og austur með jökli er nú þegar vinsæl leið ferðamanna og á eftir að aukast með tilkomu þjóðgarðs. Vatnajökulsþjóðgarður mun hafa mikla þýðingu fyrir Hálendismiðstöðina á Hrauneyjum, en ein af aðal innkomuleiðum inn í  þjóðgarðinn  liggur um hlaðið í Hrauneyjum.
    Vatnajökull er stærsti jökull landsins og um leið sá stærsti í Evrópu. Hann tilheyrir Suð Austurlandi og þekur um 8% landsins, eða um 8,100 km². Þykkt jökulsins er frá 400 metrum upp í 1.000 metra. Hæsti fjallstindur landsins Hvannadalshnjúkur er í Öræfajökli sem gengur suður úr Vatnajökli (2,110 m), ekki svo langt frá þjóðgarðinum í Skaftafelli. Skaftafell National Park.
    Í iðrum Vatnajökuls líkt og í mörgum öðrum jöklum landsins eru eldstöðvar, til að mynda Bárðarbunga og Grímsvötn, en þar varð eldgos árið 1996. Jörð skelfur þar oft á tíðum og jökulhlaup verða með nokkuð reglulegu millibili úr Grímsvatnaöskjunni.
    Margir skriðjöklar ganga frá Vatnajökli. Fara þeir smálækkandi og breiðast oft út við rætur undirfjallanna. Allir vestari skriðjöklarnir eru flatvaxnir og breiðir og sæmilega greiðfærir en austurjöklarnir eru brattir daljöklar. Að sunnanverðu enda skriðjöklarnir í 10-100 m hæð en í 700-800 m hæð y.s. að norðan. Flestir þessir skriðjöklar hafa styst verulega og þynnst á síðustu áratugum. Hjarnmörk eru um 1100 m að sunnan, 1200 m að vestan og 1300 m að norðan. Skriðjöklar ganga fram úr dölum og lægðum. Mestir þessara dala eru Breiðamörk undir Breiðamerkurjökli og Skeiðarárdalur undir Skeiðarárjökli. Hafa dalir þessir verið mýrlendir áður en jökull lagðist yfir þá.

    Verulegur hluti hálendis þess, sem Vatnajökull hvílir á, er lægri en hjarnmörk eru nú og ef jökullinn hyrfi mundi nýr jökull ekki safnast nema á hábungurnar.

    Á seinni árum hafa skemmtiferðir manna um Vatnajökul færst í vöxt. Alltítt er að ferðast sé á snjóbílum og vélsleðum. Einnig hefur aukist að fólk efni til gönguferða um jökulinn. Þær ferðir verður að undirbúa vel svo að þær endi giftusamlega.

    Lesa meira um Grímsvatnagosið 1996


    Til baka

    Prenta | Senda á vin |
    • Hótel Skógar
    • Skógum
    • Ísland
    • Sími: (354) 487 4880
    • Fax: (354) 487 5436
    • E-mail: hotelskogar@hotelskogar.is