- 29.09.2011 Check out our Blog and Facebook page
- 29.09.2011 Check out our Blog and Facebook page
- 29.09.2011 Check out our Blog and Facebook page
- 07.06.2011 Hotel Highland and Fossbúð
- 31.08.2010 Aurora Forecast Sept - Oct 2010
- Meira..
Fossbúð á Skógum
Í Félagsheimilinu Fossbúð á Skógum hefur verið opnuð ferðamannaverslun með ýmsar nauðsynjar, matarkyns, einnig er búið að opna þar matstofu með vínveitingaleyfi, þar sem fæst hefðbundinn skyndibiti, súpur og salat, einnig fæst þar staðgóður heitur matur. Kaffi og kökur, öl og sælgæti er að sjálfsögðu til sölu. Verslunin er ekki síður ætluð fyrir fólkið undir Eyjafjöllum, að það geti keypt matvörur s.s. mjólkurvörur og brauð án þess að þurfa að aka langar leiðir eftir þessum hlutum.
Mikil nauðsyn hefur verið á að koma á fót slíkum stað við hinn fjölsótta ferðamannastað, Skógafoss. Það er fjöldi fólks sem gistir á hverri nóttu við fossinn, áætlað er að allt að 100 þúsund manns komi þar árlega. Einnig er tilbreyting í að fá sér eitthvað saðsamt og gott í svanginn í langri útilegu.
Fossbúð hefur fengið andlitslyftingu og ýmsar breytingar hafa verið gerðar innanhúss, svo koma mætti veitingastaðnum skemmtilega fyrir, en sérlega vel hefur tekist til í þeim efnum.
Sími: 487-4880 Netfang: hotelskogar@hotelskogar.is
Bjóðum ykkur hjartanlega velkomin !


